...uppbrotin leiðindi
... hugsaði ég, svona mánudagar eiga það ekki skilið að líða óáreittir. Ég er nú samt þannig upp alinn, og viti borinn að ég hætti mér ekki út í neina háðska umræðu í tilefni dagsins. Ég var í sundi og spáði fram og aftur, hvernig það væri hægt að skjóta aðeins á hitt kynið. Öll þessi samkennd, hvað allir voru viðbjóðslega sammála, ógeðslegt. Þetta er eins og í ævintýrinu hamingja í hólunum.
Ég rölti í sturtuklefann, uppfullur af samkennd, horfði í kringum mig og sagði: "Jæja strákar, hver nennir að sápa mig?"
Spurning hvort að ég þurfi að finna mér nýja hverfislaug.
Góðar stundir
Langi Sleði
3 Comments:
hvernig á það að skipta um laug að breyta nokkru um þinn sjúka huga?????
Jóda
Mundu their eftir thví ad thvo thér á bak vid eyrun?
Alveg sammála þér Kristín, þú og Langi eruð einu sem eru ekki fífl. Ég er meira að segja fífl!
Post a Comment
<< Home