Sunday, March 11, 2007

...egill helga

...svaraði spurningu minni varðandi mjólkur/landbúnaðarniðurgreiðsluna sem var falin í verðsamanburði ríkissjónvarpssins. Það kom í ljós að landbúnaðurinn er niðurgreiddur um einhverja 14 milljarða, sem samsvarar 20 þús kr á mánuði á 4 manna fjölskyldu.
Sem er gott og algerlega í takt við þá ósk okkar að við séum örugglega með dýrasta landbúnað í heimi. Ég held að það sé jafnvel betri tilfinning að vita það... en að vinna í eurovision!!
Menn veltu því einnig fyrir sér hví vinstri grænir hefðu svona mikið brautargengi.
Mér sýnist það nú vera frekar augljóst þar sem þeir, ásamt sjálfstæðisflokknum, eru eini flokkurinn sem reynir að eiga einhverja stefnu.
Samfylkingin er löngu hætt að þykjast hafa einhverja stefnu, enda hefur það ekkert gengið upp þar sem þeirra stefna er einungis sú að vera ósammála sjálfstæðisflokknum.
Einnig er ekki hægt að taka mikið mark á tilviljanakenndum handaveifingum framsóknarflokksins, sem á eftir að slá heimsmet og fá neikvætt fylgi í næstu kosningum og ég sé Valgerði fyrir mér í þegnskylduvinnu við að skúra gólf.
Frjálslyndir... eru í besta falli flokkur með ljótt merki.

Góðar stundir
Langi Sleði

Tuesday, March 06, 2007

...trúi þessu ekki

...á ríkissjónvarpið!
Fyrst stálu þeir verðkönnun fréttamanna erlendis, sem 365 gerðu fyrir viku síðan... og svo tóku þeir sérstaklega fram í heimsku sinni að mjólkin væri ódýrari hér en í Dk og BNA. Þeir eru líklega búnir að gleyma því að mjólkin er niðurgreidd og þú borgar fyrir mjólkina í sköttunum þínum. Væri fróðlegt að vita hvað mjólkin er mikið niðurgreidd! Til að vita raunverð á lítra, þar liggur fréttin!

til hamingju með það

Góðar stundir
Langi Sleði

Saturday, March 03, 2007

...millísekúnda

...í lífi Langa Sleða á djamminu.
Þetta hófst allt saman kl: 02:49:58:048
Maður sem ég þekki horfði á grimmilega á mig og skvetti bjórnum svo yfir mig. Langi Sleði tók Matrix move en fékk hluta af gusunni á sig.
Sá fyrir mér högg undir bringuspalirnar með vinstri hendi og kjálkahögg með hægri hendi.
Ákvað að sleppa því, þar sem þetta var hans frústrasjón þar sem konan sem hann var að reyna við, var að reyna við mig.
Árangurslaust, tek ég fram... Þessu lauk kl: 02:49:58:049 og ég vandaði mig.
Gekk annars heim í ísrigningu, það var ákveðinn hápunktur!

Góðar stundir
Langi Sleði

...það semsagt borgar sig

... að nota kredit.
Og sem viðbót. Þá er hægt að spyrja hvort það sé staðgreiðsluafsláttur, ef svo er, þá getið þið samt borgað með kredit og hirt staðgreiðsluafsláttinn. Því mér skilst að það sé ólöglegt að mismuna gjaldtöku á þennan hátt.

Góðar stundir
Langi Sleði

Friday, March 02, 2007

...skapi næst að skipta um banka!

...og þá er ég ekki að fara í Sparisjóðina. Þar sem sjónvarpsauglýsingarnar þeirra þessa dagana sýna fólk sem er að segja hvoru öðru upp. Tvíræðnin er ... eru þau gift? er slúður? hvað gerist? ... fávitar!

Glitnir er hins vegar alveg að kúka upp á bak í fáránleika og óheiðarleika auglýsinga!
Bíðiði aðeins ég ætla að ná í bæklinginn sem ég fékk sendan í dag.
Eigðu afganginn!
Eins einfalt og að brosa!... Það er þá fjandans Sólheimaglottið!
Sko
Fyrst skulum við kíkja á dæmi þeirra um sparnað.
Tökum til dæmis að hækka allar færslur upp í næsta 1000 kall.
Kauptu þér epli á 100 kr og 900 kall er tekinn út af debetkortinu þínu og það er kallaður sparnaður.
Þú sparar og finnur ekki fyrir því!!... Epli á 1000 kall drepur alveg niður þessa 6% matvörulækkun held ég.
Nóg um það... Við skulum horfa framhjá þessu. Þessir menn, hafa ekki einu sinni nennt því að taka meðaltal debetkortafærslna hjá almenningi, heldur segja þeir bara að meðalfærslan sé eitthvaðþúsund og fimm hundruð... Þegar það blasir við að kaupmenn láta megnið af sínum vörum enda á 999, x99 eða x9 og það nálgast ekki 500 í meðaltal.
Allavegana látum það hjá líða.
Sparnaður á einu ári er þá 500x360=182.000 kr á ári miðað við eina færslu á dag.
En bíddu... hvað er eiginlega að þeim?
Hvað gengur þeim til?
Hvaða fáránlega rugl er þetta?
Hvað er ekki sagt?
Jú. kíkjum aðeins á nokkur atriði, aukaatriði.
Við skulum þá fara að nota debetkort!
Debetkortafærsla kostar 13 kr
Það þýðir að bankinn er strax búinn að hirða 13x360=4680 af þessum sparnaði þínum. Einnig skal taka það fram að ef þú ferð framyfir á reikningnum þá borgarðu
0-5000 kostar 750 kr fyrir
5000-10000 1410 kr, 10000-50000 2450 kr og svo framvegis
Þannig að það er eins gott að þú hafir efni á þessu... Ég meina... hvað haldiði að margir Íslendingar lifi á yfirdrættinum?
Þvínæst skulum við kíkja á samanburðinn við kreditkort.
Hver færsla kostar ekki neitt, þú getur beðið í mánuð með að borga og því gildir skv. lögmálum Glitnis (segjum að meðaltalseyðsla á mánuði sé 150 þús) til að einfalda dæmið skulum við setja upphæðina á vexti í 15 daga. 150 þús*6%/12 mán/30dögum*15 dagar= 375 kr á mán. M.v að þetta væri á venjulegri bók og þú sért með 6% vexti á ári... 375 kr á mán*12 = 4500
ok. Sparnaðurinn kostar þig semsagt að lágmarki 4.7+4,5 = 9,2 þús, sem fer beint í bankakassann. En.... þar sem bankinn getur notað þennan pening og lánað okkur hann með 20% vöxtum skulum við bæta við 2 þús kalli á þetta... í viðbót
Sem er æðislega góður díll ef þú ert fábjáni!
Held að Glitnir væri stimplaður geðbilaður ef að þeir myndu segja satt og rétt frá:
Sparaðu okkur vaxtagreiðslur og borgaðu meira í þjónustugjöld... og við munum græða 12 þús fyrir eigendurnar okkar.. Svo við getum látið Bjarna fá ca 300 milljónir í viðbót við venjuleg laun.
....
og mundu að brosa
því við erum hér fyrir þig.

Góðar stundir
Langi Sleði

free web hit counter